
Sveitahótelið Sveinbjarnargerði er staðsett við þjóðveg nr.1 um 10 mínútna akstur frá Akureyri. Þar eru 39 tveggja manna herbergi og 5 eins manns - öll með baði. Á Sveitahótelinu eru tveir salir, Veislusalurinn sem tekur allt að 110 manns í sæti og Fundarsalurinn sem tekur allt að 40 manns í sæti því tilvalið fyrir hópa - t.d. starfsmannahópa að halda árshátíðar og litla jafnt sem stóra fundi.
![]()
Vefsíða Skíðasvæðið Hlíðarfjalli
Frá Sveinbjarnargerði Sveitahóteli er stutt í skíðabrekkurnar á Akureyri og Dalvík og einnig er hægt er að fara í ógleymanlega skíðaferð á Kaldbak og er fólk ferjað upp á snjótroðara. Skíðabrekkan í Kaldbak eru sú lengsta á Íslandi alls 1174 metrar að lengd. Mývatnssveit er í aðeins 1 klst. stundar akstri frá Sveinbjarnargerði Sveitahóteli og skartar sínu fegursta á þessum tíma árs. Þar er einnig hægt að fara í gönguskíða- eða snjósleðaferðir og stunda ýmsa aðra afþreyingu.
![]()
Vefsíða Skautahöll Akureyrar
Tilvalið er að skella sér á skauta í glæsilegri Skautahöll við Naustaveg 1 á Akureyri. Hægt er að leigja skauta í öllum stærðum og gerðum gegn vægu gjaldi.
![]()
Vefsíða Leikfélag Akureyrar
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá er væntanleg í vetur, m.a. hefst innan skamms sýning á stykkinu Fló á skinni við leikstjórn Gísla Rúnars og mun skemmtunin ekki verða að verri endanum. Enn er verið að sýna Óvitana eftir Guðrúnu Helgadóttir við góðar viðtökur og hentar sýningin allri fjölskyldunni.
![]()
Vefsíða Jarðböðin
Jarðböðin í Mývatnssveit eru góð leið til heilsubótar fyrir líkama og sál. Opið er allt árið um kring, opnunartími á veturna er frá 12 - 22. Verð fyrir fullorðna er 1.100,-, fyrir unglinga (8-16 ára) er verðið 550,- og fyrir öryrkja, spoex og eldri borgara kostar 880,-. Aðeins er 40 mínúta akstur frá Sveitahótelinu í Jarðböðin.
![]()
Vefsíða Listasafnið á Akureyri