Vetur

  Tillögur um vetrarafþreyingu: Kaldbakur:  Skemmtileg leið til að njóta útsýnis og skemmtunar.  Upp með snjótroðara og niður með snjóþotu,

Vetur

 

Tillögur um vetrarafþreyingu:


Kaldbakur:  Skemmtileg leið til að njóta útsýnis og skemmtunar.  Upp með snjótroðara og niður með snjóþotu, bretti eða skíði.  Lengsta skíðabrekka landsins.  Tilvalin skemmtun fyrir alla fjölskylduna. (Aðeins 15 mín akstur frá hótelinu)

Hlíðarfjall:  Skíðaparadís norðursins.  Skíðakennsla og skíðaleiga í boði upp í fjalli.  Hægt að bóka ferðir til og frá hóteli upp í fjall. (Aðeins 20 mín akstur frá hótelinu)

Mývatnssveit:  Jólasveinarnir í Dimmuborgum og jarðböðin í Mývatnssveit er ævintýri út af fyrir sig (45 mín akstur frá hótelinu)

Hestaferðir:  Pólarhestar bjóða upp á skemmtilega vetrar reiðtúra með álfa-og norðurljósa ívafi.

Veiðiferðir:  Hótelið er í samstarfi við söluaðila veiðileyfa og geta boðið upp á leiðsögn í skotveiði eða stangveiði allan ársins hring. 


 

 

Svæði

Sveitahótelið

Sveinbjarnagerði 2
601 Akureyri

Sími: 462 4500

countryhotel@countryhotel.is


Smellið á kortið

Póstlisti