Um hótelið

Sveitahótelið Sveinbjarnargerði er staðsett við þjóðveg nr.1 um 10 mínútna akstur frá Akureyri. Þar eru 39 tveggja manna herbergi og 5 eins manns - öll með baði. Á Sveitahótelinu eru tveir salir, Veislusalurinn sem tekur allt að 110 manns í sæti og Fundarsalurinn sem tekur allt að 40 manns í sæti því tilvalið fyrir hópa - t.d. starfsmannahópa að halda árshátíðar og litla jafnt sem stóra fundi.

Sveitahótelið í Sveinbjarnargerði er þriggja stjörnu hótel staðsett á besta stað í Eyjafirði við þjóðveg nr.1.  Við höfum upp á að bjóða 33 herbergi, 29 tveggja manna herbergi, 3 3ja manna herbergi og eitt 4ra manna herbergi.  Öll herbergi eru með símum, sjónvarpi og sér baðherbergi.  Þráðlaust internet er í hluta herbergja. 
 Veitingastaður er á hótelinu sem býður upp á frábær kvöldverðarhlaðborð en einnig er hægt að panta létta rétti.  Panta þarf kvöldverð fyrir klukkan 16 samdægurs.  Á hlaðborðinu eru 4 síldarréttir, reyktur og grafinn lax, salat & meðlæti, súpa & brauð, heitur fiskréttur, rækjur, grænmetisréttur, kjötréttur lamb/svín, sósa, grænmeti og íslenskar kartöflur.  Morgunmatur er einnig mjög fjölbreyttur og er um að ræða 3 tegundir af brauði, 2 tegundir af kjötáleggi, ost, ávexti, ávaxtasafa, súrmjólk, múslí, kornflakes, íslenskt smjör, sultur, heitar pylsur og heita eggjahræru.
                   
Útsýni við hótelið er einkar fagurt enda skartar það sólarlagi á sumrin og norðurljósum á veturnar (þegar aðstæður leyfa).  Stutt er inn á Akureyri, aðeins um 10 mín akstursfjarlægð.  Mývatnssveit og Húsavík eru í næsta nágrenni sem og Fjörður og Kaldbakur sem bjóða upp á skemmtilega útiveru fyrir náttúruunnendur.  Heitur pottur er á hótelinu og arin þar sem gott er að slaka á með góða bók á kvöldin.
    
Hótelið hentar vel þeim sem vilja slaka á og njóta góðs matar en þó í nálægð við þéttbýliskjarna.  Stutt ýmisskonar afþreyingu eins og veiði, hvalaskoðun, söfn og skemmtilegar gönguleiðir.  Sveitahótelið í Sveinbjarnargerði hefur verið starfandi í 10 ár og hefur sama fjölskyldan rekið hótelið í þessi ár.  Hjá okkur ríkir heimilislegt andrúmsloft og persónuleg þjónusta.